Kringóma heyrnartæki

Að bæta um betur

dot2 gefa kringóma (surround) heyrn

dot2 (dot í öðru veldi) frá ReSound er ný uppfærsla heyrnartækjanna dot.
Með dot2 er bætt um betur án þess að stærð tækjanna breytist.

dot2 er fíngerðustu bak við eyra heyrnartækin og vega aðeins, nákvæmlega 1,38 grömm. Það er álíka og tvær bréfaklemmur af algengustu gerð.
Af dot2 eru þrjár grunngerðir.
Í dot2 er kringóma (surround) hljóðörgjörvi sem á engan sinn líkan.

Auk þess að gefa rétta, eðlilega heyrn er þessi nýjasta tækni búin fjölda atriða sem stuðla að því að maður getur aftur tekið þátt í hringiðu lífsins. Tilfinning fyrir umhverfinu breytist þegar maður tekur betur eftir og heyrir á ný á eðlilegan hátt. Það nefnist kringóma hljóðupplifun þegar hljóðheimurinn er skynjaður á óbjagaðan hátt.

Með kringómahljóðtækni er endurvakin tilfinningin fyrir hljóðum sem berast úr hvaða átt sem er á svipaðan hátt og þegar skipt er úr einföldum steríótækjum með tveimur hátölurum í kringóma heimabíó með hátalara til allra átta.

 


Heyrnarskoðun

Fréttir | 24. október 2008 | 11:51:44
Fullt í heyrnarskoðun á Nesvöllum

 

Uppbókað er í heyrnarskoðun hjá fyrirtækinu Heyrn en skoðunin fer fram á Nesvöllum í Reykjanesbæ í dag.
Ellisif Katrín Björnsdóttir, heyrnarfræðingur hjá Heyrn segir að 16% þjóðarinnar búi við skerta heyrn og 30% á aldrinum 30-45 ára. Er talað um að þetta sé einn stærsti lýðheilsuvandi samtímans.
Ellisif sagði að ný og mjög þróuð heyrnartæki hafi verið að koma á markaðinn á undanförnum árum en þau efla heyrn á mjög eðilegan hátt. Þau eru mjög þægileg og nett og geta verið algerlega sjálfvirk.
Aðspurð um hver væri aðal ástæðan fyrir skertri heyrn hjá fólki sagði hún arfgengi væri ein ástæðan en einnig aðstæður fólks í vinnunni. Flugmenn t.d. missa lang flestir heyrn, flugvirkjar og starfsmenn sem vinna nálægt hávaða t.d. frá vélum. Nú væru t.d. komnir eyrnatappar sem verja heyrn en fólk heyrir samt vel. „Þessir tappar virka vel t.d. á skemmtistöðum,“ sagði Ellisif.

 

 


Heyrnaþjónusta

Heyrnarþjónusta 

  • Hjá Heyrn er veitt alhliða þjónusta til að bæta úr heyrnarskerðingu undir faglegri ábyrgð Ellisifjar Björnsdóttur, heyrnarfræðins.
  • Starfsfólk Heyrnar leggur sig fram um að veita sem besta þjónustu og allur aðbúnaður og mælitæki eru ný og fyrsta flokks.
  • Í boði er fjölbreytt úrval danskra, gæðaheyrnartækja sem eiga að uppfylla þarfir flestra sem þurfa á heyrnartækjum að halda.

Heyrnartæki

  • Heyrnartækin eru frá ReSound sem er eitt stærsta fyrirtækið á sínu sviði og það er nafntogað fyrir að vera í fararbroddi við að þróa og hanna heyrnartæki.
  • Bjóðum fimm tegundir og margar gerðir af hverri tegund þannig að hver og einn getur fundið tæki við sitt hæfi.
    • AZURE eru einstök tæki sem gefa eðlilega heyrn.
    • Dot eru fíngerðustu tækin sem fást í dag.
    • Pulse eru öflug tæki með vindvörn og hleðslurafhlöður.
    • Ziga er ný tegund heyrnartækja en í þeim er notuð samefling til að bæta virkni og þrefalda endingartíma rafhlaðna.
    • Plus5 eru hagkvæm, góð tæki með fjölbreytta eiginleika.
  • Lánum tæki, sem ekki eru sérsmíðuð, til reynslu í nokkra daga.

Þjónusta

  • Lögð er áhersla á:
  • nákvæma heyrnargreiningu,
  • persónulega ráðgjöf,
  • skjóta afgreiðslu heyrnartækja,
  • nákvæma leiðsögn við notkun heyrnartækja og eftirfylgni,
  • að nota heyrnarhermi til að hjálpa aðstandendum við að setja sig i spor þess sem mælist með skerta heyrn,
  • heyrnarvernd,
  • fjölbreytt úrval stoðtækja fyrir heyrnarskerta

Samefling

Samefling gerir gæfumuninn

ReSound Ziga eru ný heyrnartæki frá ReSound. Af þeim eru ýmsar gerðir svo þau eiga að henta sem flestum. Frá litlum tækjum inn í eyru til fjölhæfra og þróaðra tækja bak við eyru þannig að flestir eiga að geta fundið Ziga tæki sem falla að þeirra þörfum og stuðla að bættri heyrn.

ReSound Ziga eru í öllum regnbogans litum og með mismunandi áferð svo að hver og einn á að geta fundið tæki við sitt hæfi sem falla að hans smekk.


Azure heyrnartækni

Azure er háþróað heyrnartæki frá ReSound.

Hugmyndin að baki Azure heyrnartækinu er að heyrn með því verði eins eðlileg og frekast er unnt. Kristaltær tónn án takmarkana og ama fyrir notandann – rétt eins og hann á að vera.
Azure flokkar ekki það sem notandinn fær að heyra og takmörkuð stærð tölvuforrita afmarkar ekki hljóðvinnslu þess. ReSound Azure styður við eðlilega heyrn notandans og hans eðlilegu réttindi að ráða því sjálfur hvað og hvernig hann vill heyra.

AZURE EFLIR HEYRN Á EÐLILEGAN HÁTT

Eðlileg stefnuvirkni

Eðlileg stefnuvirkni byggir á niðurstöðu fjölþættra rannsókna á því hvernig mannsheilinn vinnur úr hljóðum sem eyrun nema. Heilinn heldur vöku sinni yfir hljóðum sem berast úr öllum áttum. Azure heyrnatækin nýta þá staðreynd að heilinn hefur óviðjafnanlega hæfileika til að nema og raða um leið í forgang hljóðum sem berast úr hvaða átt sem er með því að nota annað eyrað til að halda uppi samræðum meðan hitt er á vakt eftir öllum hljóðum.

Eðlileg mögnun

Við þróun ReSound Azure hefur verið tekið fullt tillit til þess að við skynjum hljóð, hljóðstyrk og hávaða hvert á sinn hátt. Það hefur verið þróað nýtt kerfi sem nefnt er hljóðumhverfisbestun.

Árangur hljóðumhverfisbestunar er heyrnartæki með frábæra talgreiningu og þægilegheit í hvaða hljóðumhverfi sem er, nákvæma stillingu að heyrnarskerðingu notandans og það fellur að einstaklingsbundnum kröfum hans.

Eðlileg hljóðgæði

Í ReSound Azure er ný kynslóð af hinum óviðjafnanlega endurómunarhemli sem gerir notkun tækja þægilegri og þau geta magnað meira.

ReSound var frumkvöðull í gerð opinnar tengingar með ReSoundAIR heyrnartækinu og heldur forskoti á því sviði. Notendur eru mun fljótari að venjast heyrnartækjunum með opinni tengingu en þeim sem fylla upp í hlustina.

Eðlilegt í notkun

ReSound Azure er fyrsta heyrnartækið með þráðlaust símtól.

Hönnuðir hjá ReSound telja að það eigi að vera einfalt að nota heyrnartæki, þess vegna vorum þeir fyrstir á markað með vistvæn, hlaðanleg heyrnartæki.

Nánari upplýsingar hjá Heyrn 534-9600


Hearing loss

Hearing Facts

Why put up with hearing loss?

Did you know that hearing loss is one of the most common conditions affecting older adults? When left untreated it can significantly impact your quality of life.

 

But it does not have to be that way. There are remarkable quality-of-life-enhancing solutions. The key is early identification and intervention.

Those who wear a hearing instrument report a significant improvement in quality of life, self-confidence, personal relationships and mental well being. And today’s hearing instruments are as small, comfortable and attractive as they are powerful.

 

The evolution of the hearing instrument

Over the last 15 years, hearing instruments have been transformed from very large, very visible sound amplifiers to miniature high performance solutions. So today, it is often impossible to see that someone is wearing a hearing instrument.

Regaining hearing

The most common types of chronic hearing loss can be improved with hearing instruments.

 

Hearing improvement programs or hearing instruments will not restore normal hearing, or prevent or improve a hearing impairment caused by organic conditions.

 

Proper care and improvement can help people with hearing loss reclaim many sounds that would otherwise be lost to them. These sounds include the subtle variations in speech we rely upon to understand conversation. They also include an infinite variety of sounds that add color to life.

Heyrnaskerðing

Þjónusta með faglegri ábyrgð heyrnarfræðings

Hjá Heyrn er áhersla lögð á:

  • faglega heyrnargreiningu,
  • persónulega ráðgjöf,
  • skjóta afgreiðslu heyrnartækja,
  • nákvæma leiðsögn við notkun heyrnartækja,
  • að uppfylla þarfir hvers og eins með fjölbreyttu úrvali heyrnartækja og að forritun þeirra sé sniðin að heyrnarskerðingu viðkomandi,
  • að þeir sem eru að reyna ný heyrnartæki, sem ekki eru sérsmíðuð, fái þau lánuð í nokkra daga án skuldbindingar til að fá úr því skorið hvernig þau henti,
  • að bjóða aðeins bestu og nýjustu heyrnartækin frá danska fyrirtækinu ReSound:
    • AZURE, gefa kristaltæra, eðlilega heyrn,
    • Dot, eru svo smágerð að þau sjást varla,
    • Pulse, eru hönnuð fyrir útivist,
    • Plus5, eru ódýr góð tæki.

Óskir fólks um heyrnartæki eru mismunandi og það er háð tegund heyrnarskerðingar hvað hentar hverjum og einum.
Það getur í sumum tilvikum verið flókið og tekið tíma að átta sig á þeim upplýsingum sem heyrnarmæling gefur og einnig þarf tíma til að venjast heyrnartækjum. Því er mikilvægt að koma í eftirlit eftir að heyrnartæki hafa verið notuð í nokkurn tíma.
Upplýsingar til aðstandenda geta skipt sköpum fyrir þann heyrnarskerta þess vegna er mælt með að einhvern nákominn komi með til heyrnarfræðingsins


Heyrnartæki

Nýjar rannsóknir – grundvöllur fyrir nýjum heyrnartækjumÍ fyrsta sinn er heyrnarskertum gert kleift að heyra eðlilega, hvort sem er í hljóðu eða hávaðasömu umhverfi. Nýjar niðurstöður úr rannsóknum liggja að grundvelli fyrir þróuninni fyrir nýjum heyrnartækjum frá ReSound. Notandinn getur bæði heyrt hljóð nálægt sér og samtímis heyrt og valið hvaða ljóð hann eða hún vill fókusa á, án þess að þurfa að stilla heyrnartækin sín. Þetta hefur ekki verið hægt fram að þessu. Nýju Azure heyrnartækin frá ReSound aðlaga tæknina að eðlilegri heyrn í stað þess að láta heyrnina aðlagast tækninni. Flestir heyrnartækjanotendur í dag þurfa að skipta um stillingu eða breyta hljóðstyrk á heyrnartækjunum sínum þegar skipt er um hljóðumhverfi. Ný rannsókn í Bandaríkjunum (sjá heimildir) hefur sýnt fram á að heilinn getur fært athyglina frá heyrnartæki á einu eyra yfir á heyrnartækið á hinu eyranu og getur þannig einbeitt sér að nálægum hljóðgjafa og valið að útiloka umhverfishljóð eða öfugt. Það hefur komið í ljós að þetta virkar líka á heyrnartæki sem eru sérsniðin að notandanum eins og gert er við nýju ReSound tækin. Þetta krefst að sjálfsögðu heyrnartækja á bæði eyrun. Azure heyrnartækin hafa nú verið á markaðnum í öllum heiminum um nokkurt skeið og hægt er að vitna í notendur sem segjast nú loksins geta heyrt hvísl fyrir aftan sig þó að þeir séu í samræðum. Einnig tala notendur um að loksins er hægt að fara út að borða og heyra í borðfélögunum samtímis sem notandinn er meðvitaður um það sem er að gerast í kringum hann.” Þetta hefur ekki verið hægt áður” segir Ove Sandin forstjóri ReSound í Svíþjóð.  Í fyrsta sinn efla heyrnartæki heyrnina á eðlilegan hátt. Tækin eru fallega hönnuð, íla ekki og notandinn fær tært og eðlilegt hljóð. Heimildir:Walden T, Wallden BE (2005). Unilateral versus bilateral amplification for adults with impaired hearing. Journal of the American Academy of Audiology 16:574-584. Whitmer WM, Dittbergner AB, Coughlin M, Dominguez M (2006) Te efficacy of an asymmetrical directional microphone fitting. Posters presented at the International Hearin Aid Research Conference: Lake Tahoe, CA

Heyrirðu ekki fuglana syngja?

Heyrirðu ekki lengur fuglana syngja?

20% fólks á aldrinum 40 til 60 ára eru heyrnarskert á einn eða annan hátt. Ótrúlega margir í þessum hópi vita ekki af heyrnarskerðingunni eða halda að sá vandi, sem þeir verða varir við, stafi af einhverju öðru.Hafir þú ekki heyrt fuglana syngja undanfarið getur það stafað af heyrnarskerðingu. Þú getur að sjálfsögðu tekið þá afstöðu að af því þurfi ekki að hafa áhyggjur. Óháð því hversu mikil heyrnarskerðingin er mun koma í ljós að lífsgæði þín batna verulega ef þú gerir eitthvað strax við því.

Heyrnarskerðing hefur margs konar vanda í för með sér:

Þú heyrir ekki í dyrabjöllunni, missir af mikilvægum upplýsingum á fundum, tapar þræði í samræðum o.fl. Það getur þýtt að mörg hljóð hafa horfið – þytur í laufi, fuglasöngur, barnshjal – hljóð sem gefa lífinu gildi.En hjálpin er ekki langt undan. Á örfáum árum hafa heyrnartæki þróast og batnað mjög mikið. Nútímaheyrnartæki búa yfir fjölmörgum eiginleikum sem gera þér kleift að greina betur talmál.Helen Adams Keller (1880-1968), bandarískur rithöfundur og fyrirlesari, var bæði heyrnarlaus og blind frá því hún var eins árs gömul. Þrátt fyrir það lærði hún bæði að tala og skrifa. Hún sagði: „Við að missa sjónina tapast samband við hluti en við að missa heyrnina missir maður samband við fólk.“

Hvernig finnurðu hvort þú eigir við heyrnarskerðingu að etja?

Svör þín við eftirfarandi spurningum geta gefið vísbendingu:

  1. Áttu erfitt með að heyra sömu hljóð og aðrir heyra svo sem fuglasöng?
  2. Hváirðu oft?
  3. Hækkarðu oft það mikið í sjónvarpi eða útvarpi að öðrum finnist það óþægilegt?
  4. Finnst þér aðrir muldra?
  5. Hefurðu són í eyrunum?
  6. Biðurðu aðra stundum að segja þér hvað sagt var á fundum sem þú varst á?
  7. Áttu erfitt með að skilja þegar þú talar í síma?
  8. Ef kliður er áttu þá erfitt með að ná því sem er sagt?
  9. Hefurðu verið að staðaldri í miklum hávaða og þá sérstaklega í vinnunni?
  10. Heyrirðu varla þegar dyrabjallan eða síminn hringja?
  11. Finnst þér auðveldara að skilja raddir karla en kvenna?

 Hafirðu svarað játandi einhverjum af þessum spurningum þá getur ástæða þess verið heyrnarskerðing.Til að fá úr því skorið er mælt með því að þú farir í greiningu hjá heyrnarfræðingi eða háls-, nef- og eyrnalækni.

Hvers vegna hrakar heyrninni?

Heyrnarskerðing er af nokkrum gerðum en henni er oftast skipt í tvo flokka: leiðni- og skynheyrnarskerðingu (leiðslutap og skyntaugatap). Þegar um er að ræða leiðniskerðingu þá ná hljóðbylgjur ekki að berast inn í innra eyrað. Vandinn stafar af meini í hlust eða miðeyra þar sem þrjú smábein leiða hljóðið inn í innra eyrað. Tappi af eyrnamerg, gat á hljóðhimnu, bólga í miðeyra, brotin beinakeðja í miðeyra eða galli í gerð beina miðeyrans geta valdið leiðniheyrnarskerðingu. Oftast má ráða má bót á leiðniheyrnarskerðingu með lyfjum eða skurðaðgerð.Í 90% tilvika er um skynheyrnarskerðingu að ræða. Orsakir hennar eru oftast þær að hin örfínu skynhár í innra eyranu hafa annaðhvort brotnað eða skaddast. Skynhárin nema hljóðbylgjur og breyta þeim í rafboð sem berast til heilans um heyrnartaugina en heilinn túlkar rafboðin sem hljóð. Skynheyrnarskerðing er oftast tengd öldrun en getur einnig stafað af hávaðaálagi, höfuðáverkum, sýkingum, aukaverkun lyfja eða verið arfgeng. Hvorki er unnt að lækna skynheyrnarskerðingu með lyfjum né læknisaðgerðum. Sumir geta verið bæði skyn- og leiðniheyrnarskertir en slík flokkast sem blönduð heyrnarskerðing.Menn geta heyrt þrátt fyrir skynheyrnarskerðingu en þeir heyra ekki allt hljóðrófið. Oft dofna eða hverfa veikir hátíðnitónar svo sem fuglasöngur. Skerðing á hátíðnihljóðum talmáls svo sem /s/ rýrir talskilning. Ekki bætir það úr skák að hávær hljóð, t.d. frá viðmælanda sem hrópar, hljóma jafnhávær í eyrum þess heyrnarskerta og þess sem hefur fulla heyrn.Sem betur fer geta heyrnartæki í flestum tilvikum hjálpað heyrnarskertum og gera þeim kleift að heyra hljóð sem annars væru þeim glötuð. Það leiðir einnig til þess að sú þrúgandi einangrun, sem oft er afleiðing heyrnarskerðingar, hverfur.Rannsóknir sýna að fullorðnir, sem nota heyrnartæki, njóta lífsins á margan hátt betur, sjálfsmat þeirra vex og þeir eiga auðveldar með að umgangast annað fólk.

Hvað er til ráða við skynheyrnarskerðingu?

Mikil framför hefur orðið í gerð heyrnartækja, allt önnur hljóðvinnsla en fyrir nokkrum árum.Nútímaheyrnartæki, sem eru afar fullkomin, geta verið smágerð og lítið áberandi. Þökk sé stafrænni tækni en með henni má sníða virkni þeirra fullkomlega að þörfum notandans. Sum heyrnartæki eru meira að segja það fyrirferðarlítil að þau hverfa á bak við eyra eða inn í hlust.Bætt lífsgæði geta verið á næstu grösum. Og með því að leita hjálpar gefurðu þér, fjölskyldu þinni og starfsfélögum veglega gjöf þegar þeim finnst ekki lengur erfitt að tala við þig. 

Ellisif Katrín Björnsdóttir heyrnarfræðingur hjá Heyrn ehf

ellisif@heyrn.is


Heyrnatæki -Pulse

Ný tækni fyrir nýja kynslóð

ReSound Pulse er eitt háþróaðasta stafræna heyrnartækið sem er framleitt. Það er mikið meira en venjulegt heyrnartæki það er alveg sér á báti. Það byggir á nýrri tækni fyrir nýja kynslóð.

Pulse meðhöndlar hljóð á eðlilegan hátt, það er notalegt að bera það á sér og hönnun þess hefur fengið fjölda alþjóðlegra verðlauna.

Pulse heyrnartækið aðlagar sig að því hljóðumhverfi sem þú ert í óháð því hversu margbreytilegt það er.

Það er hannað til að þú getir haldið uppi snurðulausum samræðum.

Hljóðumhverfi hvers og eins er mjög margbreytilegt. Þú getur veri á ráðstefnu þar sem er kliður, talað í farsímann, farið á golfvöllinn þar sem vindur blæs. Við allar þessar aðstæður vinnur Pulse heyrnartækið ótrúlega vel.

Pulse heyrnartækin gera gæfumuninn þau efla heyrn þína án þess að þeir sem þú umgengst verði varir við það þeir taka jafnvel ekki eftir að þú sért með heyrnartæki.

Pulse er einnig fyrsta heyrnartækið á markaðnum sem er hlaðanlegt, svo minni áhyggjur þarf að hafa af að meðhöndla og skipta um örsmáar rafhlöður.

ReSound Pulse heyrnartækið er með vindvörn og hentar þess vegna einstaklega vel við íslenskar aðstæður.

Hátalaraleiðsla í stað hljóðslöngu

Heyrn býður nýjustu gerð af Pulse heyrnartækjum sem eru með svonefnda CRT tækni. Nú hefur hátalarinn verið fluttur inn í eyrað og í hann liggur hátalaraleiðsla frá tækinu. Í eldri gerðum er hátalari í tækinu og hljóðslanga frá honum inn í eyrað.

 

Öflug mögnun

Þegar um opna tengingu er að ræða skiptir mestu máli fyrir talskilning að mögnunin á taltíðnibilinu (2-6 KHz) sé vönduð og studd af raunverulegum heyrnarmælingum.

Vegna nýjustu útgáfu af StabilizerTM DFS geta Pulse heyrnartækin magnað 30% meira en tæki frá öðrum framleiðendum án þess að endurómun komi fram. Mælt við venjulegar aðstæður! Tækið gefur þessa mögnun þó að stefnuvirkni, hávaðadempun og endurómunarhemill séu á.

Í Pulse er ný hljóðumhverfisstýrð pökkunartækni sem merkir að heyrnartækið skiptir sjálfvirkt á milli breyta í mismunandi hljóðumhverfi. Þessi pökkunartækni ásamt jafnri rafspennu frá endurhlaðanlegum rafhlöðum tryggir að mögnun tækisins gefur betri og notalegri hljóm en flest önnur heyrnartæki.

Nú geturðu fengið þann stöðugleika sem þú villt án þess að hann sé á kostnað talskilnings, lokunar hlustar, hljóðgæða eða mögnunar.

Grafið sýnir hvernig tæki, stillt á 55 dB, magna mismunandi tíðni. Notuð er bein mæling.

Hvíta línan sýnir mögnum ReSound Pulse tækis.
Svarta línan sýnir mögnun tækja frá öðrum fyrirtækjum.

 

Margur er knár þó hann sé smár

Þrátt fyrir það að Pulse heyrnartækið sé lítið þá er í því öflug tölva sem heldur utan um mikilvæga eiginleika svo sem:

  • Stefnuvirkni, hún magnar sérstaklega tal þess sem þú talar við.
  • Sjálfvirk stilling þú þarft ekki að stilla nokkurn hlut.
  • Frábær hljóðgæði, þreytandi ýli er haldið niðri.
  • Safnar í rafrænan gagnagrunn upplýsingum um hljóðumhverfi þitt og aðstæður en það hjálpar heyrnarfræðingnum þínum að stilla tækið fyrir þínar aðstæður.

Tæknileg lykilatriði

  • WarpTM þjöppun með mikilli upplausn.
  • Ný útgáfa af StabilizerTM DFS kerfi.
  • Hleðslutækið SuperTuneTM með gervigreind.
  • Stefnuvirkni.
  • Hljóðumhverfisnæmni, sjálfvirk stilling pökkunar í samræmi við hljóðumhverfi.
  • Raunverulega vindvörnin WindShieldTM sem dregur niður í rokhljóði.
  • Fjölrása suðdempun.
  • Er fyrirferðarlítið.
  • Innbyggð AnalyzerTM gagnavistun.
  • Margverðlaunuð hönnun.
  • Gefur merki þegar rafhlöður eru að tæmast.

Hleðslutæki

Mjög einfalt í notkun

Pulse heyrnartækið er hannað fyrir hleðslurafhlöður en vinnur einnig vel með einnota rafhlöðum. Hleðslurafhlöðurnar eru hlaðnar með SuperTuneTM hleðslutækinu sem er fyrst sinnar gerðar í heiminum og er í samræmi við nútímakröfur. Heyrnartækin eru einfaldlega sett í hleðslutækið og hlaðast á 5 tímum.

Hér er eitthvað fyrir þá sem vilja hafa hlutina einfalda, eru þreyttir á að handleika örsmáar rafhlöður og vita að notkun einnota rafhlaðna er sóun sem mengar umhverfið.

Hleðslutæki með gervigreind

Að hlaða rafhlöður er ekki það eina sem hleðslutækið gerir. Merkjaljós gefur upplýsingar um heyrnartækið. Hleðslutækið má tengja við USB inngang PC-tölvu og losna þannig við spennubreytinn. Síðast en ekki síst þá aðvarar hleðslutækið þig ef þú setur í það heyrnartæki með einnota rafhlöðu.

Hleðslurafhlöður

Pulse heyrnartækin vinna best ef í þeim eru nikkelmálmhýdríð hleðslurafhlöður en þau vinna einnig vel með venjulegum einnota sink-loft rafhlöðum. Ef þú fyrir slysni reynir að hlaða einnota rafhlöður þá byrjar að blikka ljós á hleðslutækinu.

 


Næsta síða »

Um bloggið

Heyrn-Heyrnartæki-Heyrnarþjónusta-Heyrnarvernd-Ráðgjöf

Höfundur

Ellisif Katrín Björnsdóttir
Ellisif Katrín Björnsdóttir
Heyrnarfræðingur hjá Heyrnarþjónustunni Heyrn. Hlíðasmára 11, 201 Kópavogi 534-9600
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband