Dot heyrnartækni

Heyrnartækja þróun

Mikil og hröð þróun hefur orðið í heyrnartækjum á undanförnum áratugum. Heyrnarfræðingar þurfa að vera vakandi og halda sér í stöðugri endurmenntun á því sem er að gerast í heimi heyrnarfræða.

Frá því að vera stórir kassar með leiðslum úr upp í eyrun eða heyrnartól þá hafa heyrnartæki þróast mikið. Mikil breyting varð þegar tækin komust upp að eyrunum og svo kallað hlustarstykki leiddi hljóðið inn í eyrun. Framfarir voru gífurlegar þegar heyrnartæki urðu stillanleg í gegnum tölvur í staðin fyrir að heyrnarfræðingar stilltu tækin með skrúfjárnum er nú hægt að stilla heyrnartæki mun nákvæmar með tölvutækninni. Tilkoma stafrænna heyrnartækja stuðlaði að betra hljóð og meiri virkni heyrnartækjanna. Í flestum nýrri gerðum heyrnartækja eru tveir hljóðnemar, bæði hringvirkur hljóðnemi og stefnuvikurhljóðnemi. Náttúruleg stefnuvirkni sem er í tækjum frá ReSound stuðla að betri talgreiningu ásamt því að notandinn er að fullu meðvitaður um hljóðumhverfi sitt sem sum eldri gervigreindartæki útiloka.

Mikið hefur verið unnið að hönnun heyrnartækja. Lengi vel voru heyrnartæki sem eru eingöngu inn í eyranu vinsælust, en þau henta ekki öllum og valda vandræðum fyrir þá sem eru með góða bassaheyrn en þurfa aðeins mögnun á hátíðni. Þetta leiddi oft til að fólk notaði eingöngu heyrnartæki í annað eyrað. Þegar ReSound fann upp opnu tenginguna inn í eyrað 2003 varð loks heyrnarskertum með hátíðnitap kleift að aðlagast heyrnartækjum án málamyndana.
Flestir, sem ekki eru með mjög alvarlega heyrnarskerðingu, velja opna tengingu. Því eru algengustu heyrnartæki í dag flest með opnum tengingum og hægt að afgreiða samdægurs. ReSound vill stuðla að því að allir geti notað heyrnartæki án mikillar fyrirhafnar og framleiða því hleðslutæki fyrir heyrnartæki svo að ekki þarf lengur að skipta um rafhlöður nema einu sinni á ári. Einnig er hægt að setja á heyrnartæki símtól sem er með bluetooth og tengist þráðlaust farsímum.

Sama hversu fullkomin heyrnartæki verða þá er það alltaf heyrnin sem setur mörkin og kunnátta og fagmennska heyrnarfræðingsins sem heyrnargreinir og stillir heyrnartækin sem ræður því hvernig útkoman verður.

Dot minnsta heyrnartæki í heimi

Danska fyrirtækið ReSound hefur sett á markað nýtt heyrnartæki sem er það minnsta í heimi og nefnist Dot. Heyrn heyrnarþjónusta í Hlíðasmára 11, Kópavogi er með þessi einstöku tæki til sölu og þjónustu.

Hugmyndin að baki Dot er einfaldlega að búa til tæki sem bætir heyrn notandans án þess að breyta útliti hans. Þess vegna hefur fullkomnustu tækni, sem til er í dag, verið komið fyrir í eins litlu hulstri og mögulegt er. En Dot er mikið meira en þróað heyrnartæki í lítilli pakkningu, það er ekki auðvelt að finna heyrnartæki sem gefa eðlilegri hljóð og jafn notalegt er að hafa á sér eins og Dot.

Dot hentar vel yngri notendum, sem eru í fullu fjöri, þar sem það uppfyllir allar kröfur sem gerðar eru til heyrnartækja.

Smá en kná

Mörg tæki s.s. farsímar og vasaspilara hafa orðið minni og fíngerðari en um leið öflugri, þar eru heyrnartæki frá ReSound ekki undanskilin.

Með Dot kemur fram róttæk umbót bæði á stærð og virkni heyrnartækja. Byltingarkennd hönnun sameinar það að tækin eru næstum ósýnilegt og að notandinn finni varla fyrir þeim.
Vinir og starfsfélagar, þess sem notar Dot, taka aðeins eftir minni misskilningi og meiri samskiptum.

Með Dot er settur nýr staðall fyrir heyrn. Í raun er vinnsla Dot svo stöðug, skýr og sveigjanleg að erfitt er að skilja hvernig þessi örsmái hlutur getur verið svona öflugur.

Ríkulega búin

Dot heyrnartækin eru búin háþróaðri tækni. Framúrskarandi eiginleikar þeirra eru í samræmi við það markmið að ná fram eins eðlilegu hljóði og mögulegt er.
Í Dot er nýjasta hljóðvinnslukerfið sem er þekkt undir nafninu Sound by ReSound. Í kjarna þess eru margreyndir þættir sem í sameiningu gefa skýra, jafna og notalega heyrn – rétt eins og hún á að vera. Að sjálfsögðu ýlfrar ekki í tækjunum því þau eru búin öflugri endurómshemlun.

Misstu ekki af einu einasta orði

Allt frá hljóðlátu hvísli til háværari hljóða gefur mögnun Sound by ReSound óviðjafnanleg hljóðgæði fyrir allt sem hlustað er á en það þýðir að þú heyrir allt sem sagt er án þess að missa af einu einasta orði.

Dot tækin eru búin nýrri gerð opinnar tengingar við hlust sem hentar fólki með allskonar heyrnarskerðingu. Tengingar hátalara í hlust eru af mismunandi gerðum og lengdum og einnig eru nokkrar tegundir af hljóðkeilum. Með öðrum orðum allt sem þarf til að notandinn geti sett tækin upp strax eftir að heyrnarfræðingurinn hefur sniðið virkni þeirra að heyrnarskerðingu og þörfum hans.

Hraðari og sveigjanlegri aðlögun

Við erum öll sitt með hverju móti. Hönnun og aðlögunarhæfni Dot á að henta hverjum sem er. Með hinni nýrri mögnunaraðlögun má láta tækin auka mögnunina smám saman í allt að þrjá mánuði eftir að byrjað er að nota þau. Heyrnarfræðingurinn ákveður í samráði við notandann hversu mikið og hratt mögnunin á að aukast. Þessi einstaki búnaður dregur úr þeim viðbrigðum sem margir finna fyrir þegar þeir byrja að nota heyrnartæki og gefur þeim kost á að venjast tækjunum smám saman. Einnig fækkar endurstillingum.

Útlitið skiptir miklu máli

Fyrir nýja kynslóð heyrnartækjanotenda skiptir útlit og form miklu máli, það er kynslóðin sem gerir sérstakar kröfur til heyrnartækja og samþykkir enga málamiðlun þegar um er að ræða þeirra eigið útlit.

Þess vegna er mikilvægara nú en áður að geta boðið heyrnartæki sem sjást ekki þegar þau falla á bak við eyrun, eru aðlaðandi þegar haldið er á þeim og bæta að sjálfsögðu heyrnina umtalsvert. Dot heyrnartækin eru í mörgum litum þannig að hver og einn ætti að geta fundið lit við sitt hæfi.

Ótrúlega lítil, létt og þægileg

Það er ekki auðvelt að finna heyrnartæki sem eru fínlegri og þægilegra að nota en Dot. Svo það tekur ekki langan tíma fyrir notandann að venjast því að hafa þau á bak við eyrun.

Þegar fjölskyldan, vinirnir og starfsfélagarnir taka eftir tækjunum er líklegast að þeir segi að þau séu mjög flott og að það sé synd að þau sjáist ekki betur. En það sem er mest áberandi er minni misskilningur, meiri samræður og umtalsvert betri lífsgæði.

Þessi sérstaka samsetning af virkni, þægindum og stærð mun trúlega sannfæra þá, sem ættu að nota heyrnartæki, um að það sé kominn tími til að prófa þau og það er einnig þáttur í að vinna gegn fordómum sem mörgum finnst felast í að vera með heyrnartæki.

Þeir sem eru að reyna ný heyrnartæki geta fengið þau lánuð í nokkra daga án skuldbindingar til að fá úr því skorið hvernig þau henti. Nánari upplýsingar er að finna á www.heyrn.is eða í síma 534-9600

  

Hlíðasmára 11, Kópavogi, sími: 534 9600, sjá kort

Opið er virka daga frá kl. 9 til 16:30 nema á
þriðjudögum er opið frá kl. 9 til 18:30.
Tímapantanir eru í síma 534 9600 eða á heyrn@heyrn.is







Ellisif Katrín
heyrnarfræðingur, audionom
Hlíðasmári 11
Hlíðasmári 11

Dot er ný gerð heyrnartækja og þau minnstu í heimi.

Þrátt fyrir smæð eru þau öflugri en mörg önnur fyrirferðarmeiri tæki.
Komdu í heyrnarmælingu og ef heyrnin er farin að dofna fáðu þá lánuð heyrnartæki og finndu hvernig þau geta bætt heyrnina.

Kemurðu auga á það?

Þjónusta með faglegri ábyrgð heyrnarfræðings

Hjá Heyrn er áhersla lögð á:

  • faglega heyrnargreiningu,
  • persónulega ráðgjöf,
  • skjóta afgreiðslu heyrnartækja,
  • nákvæma leiðsögn við notkun heyrnartækja,
  • að uppfylla þarfir hvers og eins með fjölbreyttu úrvali heyrnartækja og að forritun þeirra sé sniðin að heyrnarskerðingu viðkomandi,
  • að þeir sem eru að reyna ný heyrnartæki, sem ekki eru sérsmíðuð, fái þau lánuð í nokkra daga án skuldbindingar til að fá úr því skorið hvernig þau henti,
  • að bjóða aðeins bestu og nýjustu heyrnartækin frá danska fyrirtækinu ReSound.

Óskir fólks um heyrnartæki eru mismunandi og það er háð tegund heyrnarskerðingar hvað hentar hverjum og einum.
Það getur í sumum tilvikum verið flókið og tekið tíma að átta sig á þeim upplýsingum sem heyrnarmæling gefur og einnig þarf tíma til að venjast heyrnartækjum. Því er mikilvægt að koma í eftirlit eftir að heyrnartæki hafa verið notuð í nokkurn tíma.
Upplýsingar til aðstandenda geta skipt sköpum fyrir þann heyrnarskerta þess vegna er mælt með að einhvern nákominn komi með til heyrnarfræðingsins.

   

Plus 5 heyrnartækni

  

Fimm gildar ástæður fyrir að velja ReSound Plus5

Með vali á ReSound Plus5 færðu allt sem þú getur vænst af heyrnartæki frá framleiðanda sem er í fararbroddi í þróun þeirra og auk „PLUS fimm“ sérstakra eiginleika sem aðeins er að finna í mun dýrari heyrnartækjum.

1. Munurinn kemur strax í ljós

Þú hefur ekki völ á heyrnartæki á sambærilegu verði sem hefur fleiri tæknilega möguleika en ReSound Plus5. Þegar þú setur tækið upp skynjarðu um leið að heyrnin batnar ótrúlega sem bætir einnig lífsgæði þín í flestum tilvikum. Þér mun sjaldnar finnast viðmælandi þinn muldra. Þú finnur einnig fyrir minni þreytu eftir daginn þar sem þú þarft ekki að leggja þig eins mikið fram við að fylgjast með.

2. Rödd þín hljómar eðlilega

Þeir sem nota heyrnartæki kvarta oft yfir holhljóði, sem kemur fram þegar tappar eru í eyrunum, það líkist því að tala inni í tómri tunnu þannig að röddin hljómar ankannalega. ReSound Plus5 hefur leyst þennan vanda með opnu kerfi sem er einstakt og var fyrst sett á markað af GN ReSound en það kemur í veg fyrir holhljóð um leið og þér finnst rödd þín hljóma eðlilega.

3. Án óhljóða

Þumalfingurregla hljóðar þannig að því ódýrara heyrnartæki þeim mun lélegri endurómunarhemlun er í því. Endurómunarhemill heldur aftur af ískri og ýlfri sem margir halda að sé eðlilegt í heyrnartækjum. En ReSound Plus5 er undantekningin sem sannar regluna. Í sérhverju ReSound Plus5 tæki er þróaður og margprófaður endurómunarhemill sem áður var aðeins í háþróuðustu heyrnartækjum.

4. Einstakt eins og fingraför

Með stafrænni tölvutækni má klæðskerasauma ReSound Plus5 þannig að það henti nákvæmlega þínum þörfum. Með því að fá gögn úr heyrnartækinu þínu safnar ReSound Plus5 upplýsingum um það hljóðumhverfi sem þú ert í. Það hjálpar heyrnarfræðingnum að stilla heyrnartækið þitt þannig að það falli að þínum þörfum. Niðurstaðan er heyrnartæki sem er jafn sérstakt og fingraförin þín.

5. Næstum ósýnilegt

Flestir sem nota heyrnartæki vilja ekki að það sjáist. Að bera það merki, sem heyrnartæki er, kemur stundum í veg fyrir að þeir sem þurfa heyrnartæki leiti eftir hjálp. Þess vegna er ReSound Plus5 hannað lítt áberandi fyrir augað. Í heyrnartæki bak við eyra er mjög grönn hljóðslanga þannig að allar gerðir tækja af ReSound Plus5 eru næstum ósýnilegar.

Frá því í júní 2007 hafa fjölmargir heyrnarskertir einstaklingar valið sér Plus5 heyrnartæki og eru ánægðir með árangurinn. Af Plus5 eru til ýmsar gerðir s.s. lítil tæki bak við eyra með opinni tengingu eða hefðbundin með hlustarstykki og einnig mismunandi stærðir af tækjum inn í eyra.

 


Heyrnartæki

Um heyrnartæki

Þegar byrjað er að nota heyrnartæki er mikilvægt að hafa í huga að þau geta ekki endurskapað að fullu hina töpuðu heyrn.

En það er enginn vafi á því að nútíma heyrnartæki geta bætt lífsgæði heyrnarskerts fólks umtalsvert.

Markmið ReSound er að þróa tækin og framleiða gæðavöru sem bæti lífsgæði þeirra sem eru heyrnarskertir. Þess vegna er í boði fjölbreytt úrval þróaðra heyrnartækja af ýmsum stærðum og gerðum.

Tölvubúnaður

Það sem skiptir einna mestu máli í heyrnartækjum eru tölvurnar í þeim.
Þekkt er að tölvur, sem líta svipað út, geta verið mjög mismunandi bæði hvað varðar vélbúnað og hugbúnað. Það sama gildir um heyrnartæki.
Mikill munur er á tölvum heyrnartækja og forrit þeirra eru einnig mjög mismunandi vönduð.
Af um 3000 starfsmönnum ReSound eru margir heyrnar-, verk-, eðlis-, stærð- og tölvunarfræðingar sem vinna við þróun tölva og forrita fyrir heyrnartæki.

Öll heyrnartækin, sem eru í boði hjá Heyrn, eru með öflugum tölvubúnaði.
Sjá t.d.>>

Dot heyrnartækið er aðeins 1,4 grömm

HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920,
sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang: heyrn@heyrn.is


Heyrnarþjónusta

Fagleg þjónusta unnin af heyrnarfræðing sem er með löggildingu frá sínu námslandi

Heyrn ehf. er ný heyrnarþjónusta í Hlíðarsmára 11 í Kópavogi sem hóf starfsemi sína 1. júní síðastliðinn. Þar er veitt sérhæfð þjónusta til að bæta úr heyrnarskerðingu. Eigandi Heyrnar er Ellisif Katrín Björnsdóttir heyrnarfræðingur sem starfar einnig hjá fyrirtækinu. Hún nam heyrnarfræði við Gautaborgarháskóla og hefur hlotið löggildingu sænskra heilbrigðisyfirvalda í sinni grein.  Hún hefur starfað frá 2002 hér á landi við heyrnarmælingar, ráðgjöf og úthlutun heyrnartækja.

Eina heyrnarþjónustan með heyrnarhermi

Til þess að njóta til fullnustu þess sem heyrnartæki hafa upp á bjóða er mikilvægt að notendur þeirra átti sig á því hvers eðlis heyrnarskerðing þeirra er. Þá er einnig mikilvægt að aðstandendur heyrnarskertra geri sér grein fyrir hvernig það er að vera heyrnarskertur. Til þess að hjálpa aðstandendum að setja sig i spor hins heyrnarskerta notast Heyrn við hermi þar sem heyrnarskerðing viðkomandi er spiluð fyrir aðstandendur. Þessi tækni, sem gerir mönnum kleift að upplifa heyrnarskerðinguna, er óneitanlega betur til þess fallin að auka skilning á aðstæðum þess heyrnarskerta heldur en að sjá línurit á tölvuskjá með torskildum táknum fyrir leikmenn.

Minni tæki og minni fyrirhöfn

Nútíma heyrnartæki eru smekkleg og lítið áberandi. Heyrn selur heyrnartæki frá ReSound sem er einn stærsti framleiðandi heyrnartækja í heiminum. Sérfræðingar ReSound fundu upp opna tengingu heyrnartækja inn í eyra sem gerir það að verkum að tækin þvinga notandann lítið og það loftar um hlustina. Bylting hefur einnig orðið í hljóðvinnslu tækjanna. Nýjustu tæki ReSound velja ekki hljóð fyrir notandann eins og eldri gervigreindar­heyrnartæki gerðu með þeirri afleiðingu að notandinn missti oft af hljóðum sem hann hefði vilja heyra. Fullkomnustu heyrnartækin efla hins vegar heyrn á eðlilegan hátt þannig að notandinn er meðvitaður um sitt hljóðumhverfi.

Hlaðanleg heyrnartæki

ReSound er fyrsta fyrirtækið sem setur á markað hlaðanleg heyrnartæki. Í stað þess að skipta um rafhlöður einu sinni í viku eins og algengt er með heyrnartæki þá þarf í flestum tilvikum aðeins að skipta um hleðslurafhlöður einu sinni á ári. Heyrnartækjunum er einfaldlega stungið í hleðslutæki að kvöldi og þau eru fullhlaðin að morgni. Hleðslurafhlöður einfalda notkun heyrnartækja, eru umhverfisvænar og af þeim er minni kostnaður. Rafspennan frá þeim er jafnari þannig að hljóðið verður betra í heyrnartækjunum. Minni hætta er á að hleðslurafhlöður leki en það gerist stundum með einnota rafhlöður og getur það skemmt heyrnartæki. Þá eru heyrnartæki með vindvörn einkar hentug við íslenskar aðstæður. Heyrn býður upp á nokkrar tegundir heyrnartækja frá ReSound sem öll er hægt að fá í mismunandi stærðum og gerðum, og jafnvel ýmsum litum, eftir þörfum og smekk hvers og eins. Á örfáum árum hafa heyrnartæki þróast og batnað mjög mikið. Með stafrænni tækni er hljóðmeðhöndlun tækjanna sniðin til og látin falla að heyrnarriti og hljóðumhverfi notandans. Heyrnartækin frá ReSound magna aðeins þann hluta hljóðrófsins sem hefur skerst. Þau sía einnig burtu síbyljuhljóð og læra að þekkja þær aðstæður sem notandinn er oftast í. Heyrnartækin eru einföld og þægileg í notkun.

Heyrnarþjónusta fyrir heyrnarskerta

Það þarf enga tilvísun til að fá heyrnargreiningu og ráðgjöf heyrnarfræðings en þurfi viðkomandi læknisaðstoð er honum vísað til háls-, nef- og eyrnalæknis. Hjá Heyrn er lögð áhersla á fagmennsku, persónulega ráðgjöf og góðan tíma til að leiðbeina við notkun heyrnartækja. Vel þarf að vanda til við val á heyrnartækjum í upphafi svo þau nýtist eiganda sínum til fulls.  Tilvalið er að nýta sér þá þjónustu sem Heyrn bíður upp á og fá heyrnartæki að láni til að fá úr því skorði hvernig þau henta.


« Fyrri síða

Um bloggið

Heyrn-Heyrnartæki-Heyrnarþjónusta-Heyrnarvernd-Ráðgjöf

Höfundur

Ellisif Katrín Björnsdóttir
Ellisif Katrín Björnsdóttir
Heyrnarfræðingur hjá Heyrnarþjónustunni Heyrn. Hlíðasmára 11, 201 Kópavogi 534-9600
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband