Fimmtudagur, 17. apríl 2008
Heyrnatæki -Pulse
Ný tækni fyrir nýja kynslóð
ReSound Pulse er eitt háþróaðasta stafræna heyrnartækið sem er framleitt. Það er mikið meira en venjulegt heyrnartæki það er alveg sér á báti. Það byggir á nýrri tækni fyrir nýja kynslóð.
Pulse meðhöndlar hljóð á eðlilegan hátt, það er notalegt að bera það á sér og hönnun þess hefur fengið fjölda alþjóðlegra verðlauna.
Pulse heyrnartækið aðlagar sig að því hljóðumhverfi sem þú ert í óháð því hversu margbreytilegt það er.
Það er hannað til að þú getir haldið uppi snurðulausum samræðum.
Hljóðumhverfi hvers og eins er mjög margbreytilegt. Þú getur veri á ráðstefnu þar sem er kliður, talað í farsímann, farið á golfvöllinn þar sem vindur blæs. Við allar þessar aðstæður vinnur Pulse heyrnartækið ótrúlega vel.
Pulse heyrnartækin gera gæfumuninn þau efla heyrn þína án þess að þeir sem þú umgengst verði varir við það þeir taka jafnvel ekki eftir að þú sért með heyrnartæki.
Pulse er einnig fyrsta heyrnartækið á markaðnum sem er hlaðanlegt, svo minni áhyggjur þarf að hafa af að meðhöndla og skipta um örsmáar rafhlöður.
ReSound Pulse heyrnartækið er með vindvörn og hentar þess vegna einstaklega vel við íslenskar aðstæður.
Hátalaraleiðsla í stað hljóðslöngu
Heyrn býður nýjustu gerð af Pulse heyrnartækjum sem eru með svonefnda CRT tækni. Nú hefur hátalarinn verið fluttur inn í eyrað og í hann liggur hátalaraleiðsla frá tækinu. Í eldri gerðum er hátalari í tækinu og hljóðslanga frá honum inn í eyrað.
Öflug mögnun
Þegar um opna tengingu er að ræða skiptir mestu máli fyrir talskilning að mögnunin á taltíðnibilinu (2-6 KHz) sé vönduð og studd af raunverulegum heyrnarmælingum.
Vegna nýjustu útgáfu af StabilizerTM DFS geta Pulse heyrnartækin magnað 30% meira en tæki frá öðrum framleiðendum án þess að endurómun komi fram. Mælt við venjulegar aðstæður! Tækið gefur þessa mögnun þó að stefnuvirkni, hávaðadempun og endurómunarhemill séu á.
Í Pulse er ný hljóðumhverfisstýrð pökkunartækni sem merkir að heyrnartækið skiptir sjálfvirkt á milli breyta í mismunandi hljóðumhverfi. Þessi pökkunartækni ásamt jafnri rafspennu frá endurhlaðanlegum rafhlöðum tryggir að mögnun tækisins gefur betri og notalegri hljóm en flest önnur heyrnartæki.
Nú geturðu fengið þann stöðugleika sem þú villt án þess að hann sé á kostnað talskilnings, lokunar hlustar, hljóðgæða eða mögnunar.
![]() Grafið sýnir hvernig tæki, stillt á 55 dB, magna mismunandi tíðni. Notuð er bein mæling.
Margur er knár þó hann sé smárÞrátt fyrir það að Pulse heyrnartækið sé lítið þá er í því öflug tölva sem heldur utan um mikilvæga eiginleika svo sem:
Tæknileg lykilatriði
HleðslutækiMjög einfalt í notkunPulse heyrnartækið er hannað fyrir hleðslurafhlöður en vinnur einnig vel með einnota rafhlöðum. Hleðslurafhlöðurnar eru hlaðnar með SuperTuneTM hleðslutækinu sem er fyrst sinnar gerðar í heiminum og er í samræmi við nútímakröfur. Heyrnartækin eru einfaldlega sett í hleðslutækið og hlaðast á 5 tímum. Hér er eitthvað fyrir þá sem vilja hafa hlutina einfalda, eru þreyttir á að handleika örsmáar rafhlöður og vita að notkun einnota rafhlaðna er sóun sem mengar umhverfið. Hleðslutæki með gervigreindAð hlaða rafhlöður er ekki það eina sem hleðslutækið gerir. Merkjaljós gefur upplýsingar um heyrnartækið. Hleðslutækið má tengja við USB inngang PC-tölvu og losna þannig við spennubreytinn. Síðast en ekki síst þá aðvarar hleðslutækið þig ef þú setur í það heyrnartæki með einnota rafhlöðu. HleðslurafhlöðurPulse heyrnartækin vinna best ef í þeim eru nikkelmálmhýdríð hleðslurafhlöður en þau vinna einnig vel með venjulegum einnota sink-loft rafhlöðum. Ef þú fyrir slysni reynir að hlaða einnota rafhlöður þá byrjar að blikka ljós á hleðslutækinu.
|
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Heyrn-Heyrnartæki-Heyrnarþjónusta-Heyrnarvernd-Ráðgjöf
Tenglar
Mínir tenglar
- Fróðleikur
- hearing aids Hearing cliniq in Kópavogur
- Heyrnarþjónusta Njótum lífsins með betri heyrn!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.