Föstudagur, 28. mars 2008
Heyrnarþjónusta
Fagleg þjónusta unnin af heyrnarfræðing sem er með löggildingu frá sínu námslandi
Heyrn ehf. er ný heyrnarþjónusta í Hlíðarsmára 11 í Kópavogi sem hóf starfsemi sína 1. júní síðastliðinn. Þar er veitt sérhæfð þjónusta til að bæta úr heyrnarskerðingu. Eigandi Heyrnar er Ellisif Katrín Björnsdóttir heyrnarfræðingur sem starfar einnig hjá fyrirtækinu. Hún nam heyrnarfræði við Gautaborgarháskóla og hefur hlotið löggildingu sænskra heilbrigðisyfirvalda í sinni grein. Hún hefur starfað frá 2002 hér á landi við heyrnarmælingar, ráðgjöf og úthlutun heyrnartækja.
Eina heyrnarþjónustan með heyrnarhermi
Til þess að njóta til fullnustu þess sem heyrnartæki hafa upp á bjóða er mikilvægt að notendur þeirra átti sig á því hvers eðlis heyrnarskerðing þeirra er. Þá er einnig mikilvægt að aðstandendur heyrnarskertra geri sér grein fyrir hvernig það er að vera heyrnarskertur. Til þess að hjálpa aðstandendum að setja sig i spor hins heyrnarskerta notast Heyrn við hermi þar sem heyrnarskerðing viðkomandi er spiluð fyrir aðstandendur. Þessi tækni, sem gerir mönnum kleift að upplifa heyrnarskerðinguna, er óneitanlega betur til þess fallin að auka skilning á aðstæðum þess heyrnarskerta heldur en að sjá línurit á tölvuskjá með torskildum táknum fyrir leikmenn.
Minni tæki og minni fyrirhöfn
Nútíma heyrnartæki eru smekkleg og lítið áberandi. Heyrn selur heyrnartæki frá ReSound sem er einn stærsti framleiðandi heyrnartækja í heiminum. Sérfræðingar ReSound fundu upp opna tengingu heyrnartækja inn í eyra sem gerir það að verkum að tækin þvinga notandann lítið og það loftar um hlustina. Bylting hefur einnig orðið í hljóðvinnslu tækjanna. Nýjustu tæki ReSound velja ekki hljóð fyrir notandann eins og eldri gervigreindarheyrnartæki gerðu með þeirri afleiðingu að notandinn missti oft af hljóðum sem hann hefði vilja heyra. Fullkomnustu heyrnartækin efla hins vegar heyrn á eðlilegan hátt þannig að notandinn er meðvitaður um sitt hljóðumhverfi.
Hlaðanleg heyrnartæki
ReSound er fyrsta fyrirtækið sem setur á markað hlaðanleg heyrnartæki. Í stað þess að skipta um rafhlöður einu sinni í viku eins og algengt er með heyrnartæki þá þarf í flestum tilvikum aðeins að skipta um hleðslurafhlöður einu sinni á ári. Heyrnartækjunum er einfaldlega stungið í hleðslutæki að kvöldi og þau eru fullhlaðin að morgni. Hleðslurafhlöður einfalda notkun heyrnartækja, eru umhverfisvænar og af þeim er minni kostnaður. Rafspennan frá þeim er jafnari þannig að hljóðið verður betra í heyrnartækjunum. Minni hætta er á að hleðslurafhlöður leki en það gerist stundum með einnota rafhlöður og getur það skemmt heyrnartæki. Þá eru heyrnartæki með vindvörn einkar hentug við íslenskar aðstæður. Heyrn býður upp á nokkrar tegundir heyrnartækja frá ReSound sem öll er hægt að fá í mismunandi stærðum og gerðum, og jafnvel ýmsum litum, eftir þörfum og smekk hvers og eins. Á örfáum árum hafa heyrnartæki þróast og batnað mjög mikið. Með stafrænni tækni er hljóðmeðhöndlun tækjanna sniðin til og látin falla að heyrnarriti og hljóðumhverfi notandans. Heyrnartækin frá ReSound magna aðeins þann hluta hljóðrófsins sem hefur skerst. Þau sía einnig burtu síbyljuhljóð og læra að þekkja þær aðstæður sem notandinn er oftast í. Heyrnartækin eru einföld og þægileg í notkun.
Heyrnarþjónusta fyrir heyrnarskerta
Það þarf enga tilvísun til að fá heyrnargreiningu og ráðgjöf heyrnarfræðings en þurfi viðkomandi læknisaðstoð er honum vísað til háls-, nef- og eyrnalæknis. Hjá Heyrn er lögð áhersla á fagmennsku, persónulega ráðgjöf og góðan tíma til að leiðbeina við notkun heyrnartækja. Vel þarf að vanda til við val á heyrnartækjum í upphafi svo þau nýtist eiganda sínum til fulls. Tilvalið er að nýta sér þá þjónustu sem Heyrn bíður upp á og fá heyrnartæki að láni til að fá úr því skorði hvernig þau henta.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 21:52 | Facebook
Um bloggið
Heyrn-Heyrnartæki-Heyrnarþjónusta-Heyrnarvernd-Ráðgjöf
Tenglar
Mínir tenglar
- Fróðleikur
- hearing aids Hearing cliniq in Kópavogur
- Heyrnarþjónusta Njótum lífsins með betri heyrn!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.